Hiti á landinu verður allt að 14 stigum nú um helgina, en vormánuðurru maí er að verða hálfnaður og hefur verið langt undir væntingum sólþyrstra Íslendinga sem þrá nú hitann fremur en hretið.
Það verður fremur hæg austlæg eða breytileg átt ydfir landinu, skýjað með köflum og skúrir á Suður- og Vesturlandi, en rigning austanlands og einnig á Norðurlandi síðdegis á laugardag, en hægari vindur og bjartviðri þar á sunnudag í áframhaldandi austanátt.
Af þjóðvegum landsins er það að frétta að hálkublettir eru á Steingrímsfjarðarheiði og Dynjandisheiði - og akstursbann er nú á fjölmörgum hálendisvegum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð.