Allt á suðupunkti í Hafnarfirði: „Stórfelld skattsvik“ – „Hatursorðræða?“

Harðar deilur mynduðust milli Óskars Steins Ómarssonar, fyrrverandi ritara Samfylkingarinnar, og Ágústar Bjarna Garðarssonar, bæjarfulltrúa Framsóknarflokksins og forseta bæjarstjórnar í Hafnarfirði, í kvöld vegna samnings fjárfestingarfélagsins 220 Fjarðar og Hafnarfjarðarbæjar. Mun Hafnarfjarðarbær leigja eða kaupa 1.500 fermetra húsnæði undir bókasafn.

Óskar Steinn birti myndir í Fésbókarhóp í Hafnarfirði af Haraldi Reyni Jónssyni, sem á 24% hlut í 220 Firði, sem og klippum úr fréttum þar sem hann var grunaður um hundruð milljóna skattaundanskot í tengslum við Skjólaskip.

„Virkilega flottur aðili sem Rósa bæjarstjóri var að fá til að selja eða leigja Hafnfirðingum húsnæði undir nýtt bókasafn. Um að gera að moka skattpeningum í menn sem standa í dómsmálum vegna stórfelldra skattsvika,“ sagði Óskar Steinn.

Ósmekklegt innlegg

Ágúst Bjarni svaraði honum að bragði.

„Mér þykir þetta alveg einstaklega ósmekklegt innlegg. Einnig áhugavert að þetta skuli koma frá einstaklingi, fyrrum ritara Samfylkingarinnar, sem hefur tekið virkan þátt í stjórnmálum; sérstaklega í ljósi þeirrar umræðu um hatursorðræðu síðustu daga. Hér er einungis verið að gera ómerkilega tilraun til afvegaleiða umræðu um þetta góða verkefni. Verkefni sem hefur fengið mikla umræðu og var samþykkt án mótatkvæða í bæjarstjórn. Að lokum er rétt að benda á að það er ástæða fyrir dómstólum og réttarkerfinu yfir höfuð.“

Hatursorðræða?

Óskar Steinn svaraði honum fullum hálsi: „Í hvaða umræðu ertu að vísa sérstaklega þegar þú talar um "umræðu um hatursorðræðu síðustu daga"? Ertu að segja að innlegg mitt hér sé hatursorðræða? Í garð hvers þá? Þetta væri gott að fá á hreint því ég vil hreinlega ekki trúa því að þú sért að líkja innleggi mínu hér við þau ofbeldisverk í garð stjórnmálafólks- og flokka sem framin hafa verið að undanförnu.“

Óskar segir það rangt að málið hafi fengið mikla umræðu og verið samþykkt samhljóða í bæjarstjórn. „ Þetta mál, þ.e. samkomulagið við eignarhaldsfélagið Fjörð 220, hefur einu sinni verið rætt í bæjarstjórn. Það var 25. nóvember 2020. Þar var samkomulagið sannarlega ekki samþykkt samhljóða heldur sátu tveir bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar hjá og bókuðu meira að segja sérstaklega um skort á umræðu og aðkomu bæjarbúa að ákvörðuninni. Þar stendur m.a.: "Við erum að mörgu leyti hrifin af hugmyndum um nýtt bókasafn í miðbænum en okkur finnst mikill asi í tengslum við málið og það hafi ekki hafa fengið nægjanlega umræðu í samfélaginu og aðkoma íbúa hefur engin verið. Við hefðum viljað sjá þetta mál skoðað betur í heild og í tengslum við þá vinnu sem nú er í gangi varðandi framtíðarhúsnæði stjórnsýslunnar. Á þeim forsendum sitjum við hjá við þessa afgreiðslu,“ segir Óskar.

„Þessi samningur er undanskilinn lögum um opinber innkaup eins og aðrir þjónustusamningar varðandi kaup eða leigu á fasteignum og er þar með undanskilinn kröfu um opinbert útboð. Í ljósi þess að ekkert útboð hafi farið fram er enn mikilvægara en ella að bæjarbúar séu upplýstir um hvaða aðilar það eru sem fá slíka samninga við bæinn og á hvaða forsendum. Í því samhengi hlýtur að mega benda á það þegar aðilar sem bærinn velur til samstarfs sæta ákærum um stórfelld skattsvik.

Þú hlýtur að geta lagt meira til þessarar umræðu en þessa heilögu vandlætingu og langsóttar tengingar við ömurleg ofbeldisverk gegn stjórnmálafólki að undanförnu.“

Orðræða sem ýtir undir verknað

Ágúst Bjarni sagði að hann væri ekki að líkja innleggi Óskars við skotárásirnar á skrifstofur stjórnmálaflokka eða bifreið borgarstjóra.

„Heldur getur sú orðræða sem þú viðhefur ýtt undir slíkan verknað. Þetta er tvennt ólíkt - en þó tengt. Umræðan hefur farið fram í bæjarráði, fyrir bæjarstjórnarfundi og í bæjarstjórn. Auk þess hefur farið fram ítarleg greining og mikil vinna í verkefnið innan stjórnsýslunnar, m.a. hagkvæmnisathugun. Þú verður að eiga þetta við sjálfan þig, en mér þykir hins vegar vont að þú sjáir ekkert athugavert við þetta innlegg þitt.“

Algjört rökþrot

Óskar svaraði honum: „Hér fullyrðir þú Ágúst Bjarni að þessi færsla mín geti ýtt undir ofbeldisverk gegn stjórnmálafólki. Þú átt þá væntanlega við Rósu Guðbjartsdóttur, því hún er eini stjórnmálamaðurinn sem ég nefni í færslu minni.

Ég bið þig um að útskýra þá fullyrðingu nánar því í mínum huga er þetta enn ansi langsótt hjá þér og reyndar til marks um algjört rökþrot að kalla eðlilega pólitíska gagnrýni hatursorðræðu.“

Ágúst Bjarni baðst svo afsökunar:

„Það er gert hér með - samþykkt án mótatkvæða í bæjarstjórn er rétt. Samfylkingin sat hjá. Sjálfsagt að biðjast afsökunar á því.“