Í gær var staðfest E. coli (STEC) sýking hjá einu barni, eftir að 13 sýni voru rannsökuð með tilliti til STEC. Barnið er eins og hálfs árs gamalt. Alls hafa því 17 börn greinst með E. coli sýkingu að undanförnu.
Ekki liggur fyrir hvar barnið smitaðist en Þórólfur Guðnason sagði í samtali við Mbl.is í gær, áður en greint var frá þessu 17. smiti, að hin smitin 16 komi að öllum líkindum frá sama stað, Efstadal II. Ekkert bendi til annars.
„Eins og ég segi þá eigum við eftir að fá upplýsingar um það en þær upplýsingar sem eru fyrirliggjandi benda ekki til neins annars,“ sagði hann í samtali Mbl.is.
Í tilkynningu frá embætti sóttvarnalæknis segir að barnið verði í eftirliti á Barnaspítala Hringsins.
Eftir helgi kemur svo í ljós hvort fleiri börn hafi smitast, þar sem ekki er að vænta frekari niðurstaðna af ræktunum fyrr en á mánudaginn 15. júlí.