Reykjanesbrautin hefur verið lokuð og þar með er ekki lengur hægt að komast akandi frá höfuðborgarsvæðinu. Þess utan er einnig búið að loka Suðurstandarvegi, Suðurlandsvegi frá Rauðavatni, Kjalarnesi og Mosfellsheiði.
Flestum fjallvegum á landinu hefur verið lokað. Vegir á Reykjanesi og víða á Suðurlandi eru einnig lokaðir og í Skagafirði er slæmt ferðaveður og flestir vegir lokaðir. Vegurinn um Súðavíkurhlíð, Siglufjarðarvegur og Ólafsfjarðarmúli eru lokaðir vegna snjóflóðahættu. Einnig er lokað með suðausturströndinni frá Hvolsvelli og austur á Fáskrúðsfjörð. Ekki er reiknað með að þessir vegir opni fyrr en á morgun.
Hálka er á flestum öðrum leiðum en flughálka á nokkrum leiðum á Suðurlandi.