Allir um borð voru íslendingar - þurftu að notast við klippur til að koma fólkinu úr vélinni

Þrír létust þegar lítil tveggja hreyfla flugvél brotlenti skammt fyrir norðan við flugvöllinn í Múlakoti í Fljótshlíð í gær. Hringt var í neyðarlínuna um hálf níu í gærkveldi og var allt tiltækt lögreglu og slökkvilið kallað út. Ekki er búið að birta nöfn þeirra látnu en lögreglan hefur staðfest að allir sem voru um borð hafi verið Íslendingar.

Rannsókn á slysinu er nú þegar í fullu gangi og er rannsóknarnefnd samgönguslysa á staðnum. Þrír einstaklingar voru útskurðaðir látnir á staðnum en farið var með hina tvo í sjúkrabílum á móts við þyrlu landhelgisgæslunnar sem flutti þá til Reykjavíkur. Slökkviliðsmenn þurftu að notast við klippur til að ná fólkinu úr flugvélinni.