Allir tollar, utan matvöru, á burt 2017

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra boðar afnám allra tolla undir lok kjörtímabilsins ef undan eru skildir tollar á matvörum. Hann fullyrðir að staðið verði við þetta loforð fyrir 1. janúar 2017.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag, en þar segir hann að afnám þessara tolla muni þýða tekjumissi fyrir ríkissjóð upp á sex milljarða króna, en bendir á að varla þurfi að grípa til sérstakra mótvægisaðgerða vegna þessa enda muni aukin neysla af þessum sökum skila sér í meiri tekjum ríkissjóðs.

Bjarni hafði áður boðað afnám tolla á fatnað og skóm frá 1. janúar næstkomandi, en nú tekur hann enn frekar af skarið og ætlar að bæta um betur árinu þar á eftir.

\"Þessar aðgerðir eru hugsaðar til þess að lækka vöruverð, auka gagnsæi í verðmyndun, bæta samkeppnishæfni  og auka skilvirkni og nýta þannig betur framleiðsluþættina,\" segir hann við blaðið.