Allir þjóðvegir landsins loksins færir

Enda þótt enn sé gert ráð fyrir slyddu um norðaustanvert landið þegar líða tekur á næstu helgi má búast við því að veturinn sé endanlega að losa krumlur sínar af heiðum og dölum. Hitatölur stíga nú jafnt og þétt og gæti slegið yfir 15 gráðurnar á næstu dögum sem á að heita prýðilegur sumarhiti á Íslandi.


Þessi tíðindi má lesa út úr yfirliti Vegagerðarinnar sem segir í dag að vegir séu að mestu greiðfærir um allt land. Ber þá nýrra við, því fram til þessa dags, eða sem nemur miðjum maí, hefur ýmist verið ófært, illfært eða torfært einhvers staðar á þjóðleiðum landsins allt frá byrjun nóvember á síðasta ári.


Enn eru að vísu hálkublettir á Steingrímsfjarðarheiði, Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði í vestri, en austanmegin á landinu þar sem heiðar hafa verið með öllu ófærar eða torfærar í allan vetur er nú orðið ökufært um allar nafir og skörð; það er jafnvel búið að opna yfir Öxi þótt þar séu hálkublettir.


Austan og nroðaustanáttir verða ríkjandi næstu daga með talsverðum belgingi víða um land sem er ef til vill í takti við veturinn  sem er endanlega að kveðja.