Þórunn Egilsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, segir að í ljósi umræðunnar velti landsbyggðarþingmenn því fyrir sér hvort þjóðin vilji bara hafa þingmenn á suðvesturhorninu, þar sem kostnaðurinn við landsbyggðarþingmenn sé svo mikill.
Þórunn er ein þeirra sem fær hvað mest endurgreitt vegna ferðakostnaðar, en hún sagði í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun að það væri sjálfsagt að upplýsingar um slíkt séu birtar opinberlega og að þingmenn taki bílaleigubíla.
Það væri aftur á móti eðlileg krafa fólksins í kjördæminu að fá að hitta sína þingmenn í heimabyggð. Umræðan um ferðakostnað þingmanna sé að mörgu leyti ósanngjörn og ekki alveg raunsæ.
„Eðlilega erum við í Norðaustur-, Vestur og Suðurkjördæmi að keyra meira og ferðast meira. Þetta eru alveg griðarlega stór kjördæmi. Og ef við erum komin á þann stað að það megi ekki kosta neitt, þá erum við að tala um að við viljum bara hafa þingmennina hér á suðvesturhorninu, þá er það bara allt önnur umræða sem við þurfum að taka. En það sem ég finn er það að fólki finnst gott að við búum í kjördæminu, séum þáttakendur í kjördæminu með fólkinu og þekkjum það sem er að gerast þar,“ segir Þórunn við Rás 2.
Þórunn segir við ríkismiðilinn að fólk átti sig ekki á þeim aðstæðum sem landsbyggðarþingmenn búi við: „Við veljum að vera í góðu sambandi við kjósendur okkar. Ég legg mig fram við að fara um kjördæmið og mæta á fundi og hitta fólkið. Það þýðir það líka að ég er alltaf að taka tíma frá fjölskyldunni minni. Þið getið bara rétt ímyndað ykkur það. Það er enginn að kveinka sér undan því en svona er þetta bara. Við þurfum bara að tala um hlutina eins og þeir eru.“