Allir þættir á vefnum

Þættir á HringbrautAllir sjónvarpsþættir Hringbrautar verða aðgengilegir almenningi á vefmiðlinum hringbraut.is sem hefur nú hafið göngu sína. Sjónvarpsstöðin hóf útsendingar 18. febrúar síðastliðinn og frumsýnir tvo nýja íslenska þætti á hverjum virkum degi. Allir þeir þættir eru nú aðgengilegir á vefmiðlinum í tímaröð undir flipanum sjónvarp. Einnig verður boðið upp á styttri útgáfur úr þáttunum á forsíðu hringbrautar.is en þar verður að finna stuttar klippur úr hverjum þætti sem geyma fréttnæm, athyglisverð eða einfaldlega skemmtileg ummæli Hringbrautargesta. Það er von forráðamanna Hringbrautar að með þessari þjónustu gefist sem flestum landsmönnum, heima og erlendis, tækifæri til að fylgjast með öllu sjónvarpsefni Hringbrautar.


Æ fleiri landsmenn fylgjast nú með sjónvarpi í gegnum tölvur sínar og er það trú starfsmanna Hringbrautar að þetta sambland vefmiðils og sjónvarpsstöðvar muni henta breyttum venjum fólks hvað notkun þeirra á fjölmiðlum varðar. Eftir sem áður verða þættirnir þó frumsýndir í sjónvarpi, en aðgengilegir eftir það á vefnum - og er ekki ráðgert í byrjun að senda sjónvarpsefnið beint út á netinu.


Þættir á Hringbraut.is hér: