Breki Karlsson, forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi segir að fólk hafi almennt meiri áhuga á hvað það fær í laun heldur en hvernig það eyðir þessum sömu launum. Þetta hljómi jafn skringilega og það sé nálægt sannleikanum.
Hann minnir á í þessu sambandi að innan við 30% Íslendinga haldi heimilisbókhald, sem hann segir þó að feli í sér mikinn ávinning. Sjálfum hafi honum tekist að lækka innkaup heimilisins um 25%, eftir að þau hjónin fóru að halda heimilisbókhald með Meniga í netbankanum.
Breki var meðal gesta í þættinum Ég bara spyr, sem sýndur var á Hringbraut í vikunni. Þar fór hann yfir það helsta sem fólk þyrfti að vita um heimilisbókhald. Meðal þess sem hann nefndi var að fólk setti sér raunhæf markmið um fjármál heimilisins, eða SMART markmið, sem eru allt í senn mælanleg, raunhæf, tímasett og framkvæmanleg.
Áhorfendum Ég bara spyr var sett það heimaverkefni fyrir viku, að setja sér þetta markmið. Umsjónarmaður þáttarins sagðist hafa sett fjölskyldunni það markmið að safna fyrir sumarfríi á næsta ári. Það markmið sagði Breki gott og gilt, því það uppfyllti öll skilyrði. Það sem nú þyrfti að gera væri að áætla kostnað sumarfrísins og deila þeim kostnaði niður á þá mánuði, sem væru fram að fríi.
Breki sagði að í Meniga í netbönkum væri margt sem fólk gæti nýtt sér. Til dæmis gæti fólk skoðað hvað önnur heimili á svipuðum stað og með svipaða fjölskyldustærð, væru að meðaltali að eyða í ákveðna liði. Þannig hefði hann til dæmis áttað sig á því að þau hjónin færu mun oftar út í búð en aðrir. Þegar þau settu sér það markmið að fækka búðarferðum, hefðu þau bæði lækkað bensínkostnað og innkauparkostnað heimilisins. Það hefðu þau gert, án þess að finnast þau vera að spara í matarinnkaupum eða breyta einhverju. Aðalmálið hefði verið að litlu dýru kaupin hefðu dottið út.
Í nóvember hefur Ég bara spyr verið í samstarfi við Arion banka um fjármálafræðslu fyrir fullorðna. Í næsta þætti verður rætt um lífeyrissjóðsgreiðslur og skerðingu bóta frá Tryggingastofnun, eftir að fólk hættir að vinna.