Ingólfur Gissurarson, löggiltur fasteignasali, skorar á Hagsmunasamtök Heimilanna að fara af stað með undirskriftarlista þar sem farið er fram á afnám verðtryggingarinnar.
Nú sé í gangi undirskriftarlisti á vegum Kára Stefánssonar, en verðtryggingarmálið sé eitt brýnasta úrlausnarefni heimilanna í landinu og nú sé ekki eftir neinu að bíða.
Í sama streng tekur Bárður Hreinn Tryggvason hjá Valhöll fasteignasölu, sem segir þó mikilvægt að um leið og verðtryggingin verði afnumin, þurfi að endurskoða vaxtabyrði lána og greiðslubyrði fólks af húsnæðislánum.
Umræðan um pólitíkina og húsnæðismálin var tekin fyrir í þættinum Afsal á Hringbraut í gærkvöld, en þar voru Bárður og Ingólfur gestir Rakelar Sveinsdóttur. Í þættinum, sem sjá má hér á vef stöðvarinnar, kemur fram að ef stjórnmálaflokkarnir ætla sér eitthvað í næstu kosningum, skipti engu máli í hvaða flokki menn eru, að afnema verðtrygginguna er eitthvað sem þarf að gerast á næstu vikum og fyrir sumar.
Ingólfur segir menn geta gleymt því að ná árangri í næstu kosningum, ef ekki verður staðið við þau stóru loforð sem gefin voru fyrir síðustu þingkosningar. Ef þjóðaratkvæðagreiðslu þurfi til að afnema verðtrygginguna, þá segist hann styðja það en tekur fram að það sé alls ekki hagur Sjálfstæðisflokksins að sporna við þessum breytingum, þeim yrði þá bara refsað sjálfum í næstu kosningum.
Bárður tekur í sama streng og segir að nú þýði ekkert fyrir menn að tala í frösum eða ætla sér að vera með yfirlýsingar og loforð fyrir næstu kosningar, þetta sé mál sem þurfi að leysa strax.
Afsal er á dagskrá Hringbrautar öll fimmtudagskvöld og endursýnt um helgar.