Allir gömlu bústaðirnir í rúst og rusl út um allt: sjáðu myndirnar

„Það er svo slæmt ástand við Elliðavatn, allir gömlu bústaðirnir í rúst og draslið út um allt. Er búin að hafa samband við Kópavogsbæ og heilbrigðiseftirlitið en það er algjör uppgjöf og aðgerðarleysi í gangi.“ Þetta segir Valdís Anna Garðarsdóttir íbúi á svæðinu í samtali við Hringbraut.

\"\"

Við Elliðavatn í Kópavogi má sjá hvar gífurlegt magn af rusli er á víðavangi í kringum fyrrum sumarhúsabyggð á svæðinu. Sumarhúsin eru öll auð í dag og hafa þau legið undir skemmdum og jafnvel búið að kveikja í sumum þeirra. Í nóvember 2018 skrifuðu nokkrir íbúar í nágrenni svæðisins bréf til Kópavogsbæjar þar sem þeir kvörtuðu undan hræðilegu ástandi á svæðinu. Á þeim tíma sagði Sigríður Björg Tómasdóttir, upplýsingafulltrúi Kópavogsbæjar að lagt yrði áherslu á málið og það leyst eins fljótt og auðið er. Eins og myndirnar sýna hefur ekki Kópavogsbær ekki brugðist við ástandinu.

\"\"

Í samtali við Hringbraut í gær bað Sigríður blaðamann um að hafa samband við sig í dag þar sem hún gæti ekki gefið upp neinar upplýsingar um málið að svo stöddu. Hún sagði þó að eftir að ábendingin barst í nóvember frá íbúum á svæðinu hafi málið farið í vinnslu en ekki hafi verið hægt að grípa til aðgerða þar sem snjór lagðist yfir svæðið.  Enn hefur ekkert svar borist frá Kópavogsbæ um hvers vegna svæðið hefur ekki ennþá verið hreinsað.

\"\"

\"\"