Það virðist sem allir frambjóðendur, nema ef vera skal helstu og elstu karlarnir á listum Sjálfstæðisflokksins, séu að breytast í einu og sömu Katrínu Jakobsdóttur.
Þetta er mat Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur, fyrrverandi fréttastjóra Fréttatímans þegar hún litur yfir framboðslista flokkanna fyrir þingkosingarnar sem haldnar verða eftir 25 daga, en hún saknar sárlega breiddarinnar á framboðslistunum; gamla fólksins, verkafólksins, unga fólksins ... allir séu að steypast í sama mót og líkist meira og minna fyrrnefndri Katrínu.
Hún skilur ekki Sjálfstæðisflokkinn, einsleitnin sé þar sláandi og fáránlegt að flokkurinn hafni aftur sínum frambærilegasta þingmanni, Unni Brá Konráðsdóttur sem situr enn í fjórða sæti í syðra.
Steingerður saknar alvöru pólitíkur, umræðan snúist um eltingaleik við dægurþrasið fremur en raunverulegar úrlausnir fyrir fólki í landinu, enginn listi upp aðgerðalista yfir það sem þarf að gera og sýni verklagið sem geti hrint því í framkvæmd. Veikt Alþingi endurspegli á engan hátt vilja meginþorra landsmanna.
Og þegar taldið berst að senuþjófi íslenskra stjórnmála nú um stundir, Sigmundi Davíð, þá hefur hann að sögn stallsystranna ekki enn bitið úr nálinni með Wintris; hann bara hafi ekki auðmýktina í sér ...
Ritstjóarnir byrja klukkan 20:30 í kvöld.