Allir flokkar vilja auðlindasjóð

Allir stjórnmálaflokkarnir á Alþingi eru sammála um að stofna nýjan orkuauðlindasjóð, hliðstæðan þeim sem Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra kynnti til sögunnar á ársfundi Landsvirkjunar í dag. 


Sjóðurinn var nefndur í sömu andrá og stórbætt afkoma Landsvirkjunar var til umfjöllunar á fundinum, sem haldinn var með viðhöfn í Hörpu og var enda 50 ára afmælisfundur fyrirtækisins sem er að öllu leyti í eigu ríkisins. Þar var upplýst að fyrirtækið hefur náð að greiða hratt niður skuldir sínar og má ætla að arðgreiðslur þess geti numið allt frá 10 til 20 milljörðum á næstu árum, en þær hafa hingað til verið hálfur annar milljarður á ári að jafnaði.


Orkunúytingarsjóðnum er ætlað að vera eins konar varasjóður sem hægt er að grípa til vegna brýnna samfélagsverkefna eða óvæntra útgjalda til þeirra málaflokka sem á þurfa að halda vegna óvanalegra aðstæðna hverju sinni. Þá er einnig nefnt að sjóðurinn geti orðið nokkurs konar sveiflujöfnunartæki í íslensku hagkerfi, en vart þarf að taka fram í þeim efnum að efnahagur Íslands hefur verið mjög sveiflukenndur á undanförnum áratugum og fyrirsjáanleikinn og stöðugleikinn í hagkerfinu hefur vart eða ekki verið til staðar.


Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar segir sjóð sem þennan lengi hafa verið á stefnuskrá jafnaðarmanna og Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna segir sinn flokk tilbúinn til samstarfs enda hafi hugmyndin komið upp í tíð síðustu ríkisstjórnar. Undir þessi orð taka bæði Helgi Hrafn Gunnarsson frá Pírötum og Guðmundur Steingrímsson oddviti Bjartrar framtíðar í dag.