Allir helstu fjallvegir landsins eru nú loksins færir eftir einn snjóþyngsta vetur um áratugaskeið sem hefur gert það að verkum að ekki hefur verið unnt að opna vinsælar fjallaleiðir fyrir bifreiðar fyrr en sumri er tekið að halla.
Bæði Kjalvegur og Sprengisandur er nú opinn bifreiðum og sömuleiðis vegurinn inn í Herðubreiðarlindir sem erfiðlega hefur raunar gengið að opna vegna svo að segja endalausarar ofankomu síðustu daga. Heldur hráslagalegt mun hafa verið þar um að litast síðustu daga, jafnvel vikur.
Ákoman á hálendinu var með allra mesta móti síðasta vetur - og er talið að jafnfallinn snjór á jöklum hafi verið á bilinu 10 til 16 metrar sem eru óhemju mikið magn. Þessarar ofankomu hefur vitaskuld séð stað í óbyggðum á milli jökla þar sem þriggja metra jafnfallið snjólag var yfir vinsælum ferðamannaslóðum í byrjun júní, á svæðum sem alla jafna hafa verið auð um það leyti árs.