Hitastigi í veðrinu innanlands verður nokkuð misskipt næstu daga ef marka má veðurspár. Norska langtímaspáin yr.no gerir ráð fyrir að vorið sé farið að banka hressilega upp á í höfuðborginni en allar hitatölur verða rauðar næstu tíu dagana í Reykjavík skv. langtímaspá norsku veðurstofunnar. Tveggja til sex stiga hiti verður í höfuðborginni að jafnaði og sól næstu daga. Síðan mun rigna þegar líður á vikuna.
Allt aðra sögu er að segja norðanlands. Norska veðurspáin segir að tíu næstu dagana verði aldrei hiti á Akureyri, allar tölur bláar. Stundum verður hitastigið nálægt frostmarki en kuldinn gæti orðið að sex stigum sem þjónar þó hagsmunum þeirra sem reka skíðasvæði og hafa gaman af skíðaiðkun.
Norska veðurspáin er í nokkru samræmi við spá Veðurstofu hér innanlands. Segja má að landið verði bleikt og blátt eftir landshlutum. Hiti fyrir sunnan. Frost fyrir norðan.