Hildur Guðnadóttir kom, sá og sigraði í gærkvöldi á Óskarsverðlaununum þegar hún varð fyrsti Íslendingurinn til að hreppa slík, fyrir tónsmíði sína í kvikmyndinni The Joker. Hildur var klökk í vinningsræðunni sinni og lýsti því á blaðamannafundi eftir á að hún hefði orðið agndofa þegar sigurinn var tilkynntur.
Á blaðamannafundinum var hún meðal annars spurð að því hvort hún hefði gert sér greint fyrir því að goðsagnir í bransanum, líkt og tónskáldin John williams og Alexandre Desplatt, hefðu veitt henni standandi lófaklapp þegar sigurinn var tilkynntur.
Hér að neðan má sjá þá mögnuðu stund þegar Hildur var kynntur sem sigurvegari:
#Oscars Moment: Hildur Guðnadóttir (@hildurness) wins Best Original Score for @jokermovie. pic.twitter.com/uwrOuBszuD
— The Academy (@TheAcademy) February 10, 2020
„Ég veit, ég sá það,“ svaraði Hildur þá. „Það er villt augnablik. Ég heyrði nafnið mitt og mér er bylt við og alla leiðina upp á sviðið þá hugsaði ég: Ég get þetta, ég get þetta. Og þegar ég kom á sviðið og sá alla standa upp varð ég bara agndofa.“
Hún sagði það hafa verið yfirþyrmandi að etja kappi við slíkar kanónur. Hún hefði þó hitt þá báða margoft á verðlaunahátíðum síðustu vikna og það hefði verið frábært að fá að kynnast þeim.
Á blaðamannafundinum lýsti Hildur því jafnframt að það hefði verið magnað að sjá Joaquin Phoenix taka hinn heimsfræga baðherbergisdans í kvikmyndinni the Joker. Honum hefði tekist að framkalla nákvæmlega sömu tilfinningar og hún hefði haft í huga þegar hún samdi tónlistina fyrir atriðið.
Þá sagðist Hildur ekki ætla að flytja frá Berlín og til Hollywood. Ástæðan sú að þar væri aðeins of sólríkt, sem hentaði ekki tónlistinni sem hún semur.