Eins og venja er þá eru ekki allir á eitt sáttir með Áramótaskaup Ríkisútvarpsins, sumum fannst skaupið frábært á meðan öðrum fannst það hrein hörmung. Einn af þeim sem var mjög ósáttur var Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor við Háskóla Íslands. Það var ekki síst þátttaka Jóns Gnarr, fyrrum borgarstjóra, sem fór fyrir brjóstið á Hannesi.
„Það er auðvitað með ólíkindum, að Ríkisútvarpið fái Jón Gnarr til að skrifa handrit að spaugi um liðið ár. Hann er hatursmaður Sjálfstæðisflokksins og alkunnur letingi og auðnuleysingi, tók full laun fyrir að gera ekki neitt sem borgarstjóri, en fann vanmetakennd sinni útrás í árásum á sjálfstæðismenn í borgarstjórn. Hann er trúður án erindis,“ skrifaði Hannes á Facebook-síðu sína í nótt.
Nánar á