Álitsgerðir vegna þriðja orkupakkans kostuðu 16 milljónir - „höfum kappkostað að vanda vel til verka“

Utanríkisráðuneytið hefur tekið saman upplýsingar um kostnað vegna aðkeyptrar lögfræðiráðgjafar sem tengist þingsályktunartillögu um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 93/2017 um breytingu á IV. viðauka við EES-samninginn, eða svokallaðs orkupakka. Var heildarkostnaður vegna állitsgerðanna rúmlega 16 milljónir króna.

Álitsgerðirnar sem utanríkisráðuneytið lét vinna í tengslum orkupakkan voru af tvennum toga. Annars vegar voru hafðar uppi efasemdir um að upptaka þriðja orkupakkans gæti haft stjórnskipuleg álitamál í för með sér. Þar hefur verið sérstaklega vísað til þess að ákvæði reglugerðar Evrópusambandsins nr. 713/2009, um að komið verði á fót samstarfsstofnun eftirlitsaðila á orkumarkaði, gæti falið í sér framsal á ríkisvaldi sem ekki stæðist stjórnarskrá. Til að fá úr því skorið leitaði utanríkisráðherra til fjögurra sérfræðinga: Stefáns Más Stefánssonar, prófessors við lagadeild Háskóla Íslands, og Friðriks Árna Friðrikssonar Hirst lögfræðings; Skúla Magnússonar, héraðsdómara og dósents við lagadeild Háskóla Íslands, og Davíðs Þórs Björgvinssonar, dómara við Landsrétt. 

Hins vegar kom fram í umræðum um þingsályktunartillöguna á Alþingi gagnrýni á að ekki hefði verið aflað álits á hugsanlegum afleiðingum þess að synja ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar staðfestingar, í fyrsta sinn í 25 ára sögu EES-samstarfsins. Að sögn utanríkisráðuneytisins væri um fordæmalausa ákvörðun að ræða. Þótti því utanríkisráðherra rétt að leita álits sérfræðinga um afleiðingar þess að synja ákvörðun nefndarinnar staðfestingar. Í því skyni var annars vegar leitað til Carls Baudenbacher, fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins, og hins vegar Alþjóða- og Evrópuréttarstofnunar Háskólans í Reykjavík. Álitsgerðirnar voru kynntar utanríkismálanefnd Alþingis 9. maí síðastliðinn.

Heildarkostnaður við álitsgerðirnar og ráðgjöf nemur samtals 16.106.657 krónum. Þar af nemur kostnaður vegna álitsgerðar Baudenbachers 8.470.737 krónum.

„Við höfum kappkostað að vanda vel til verka í þessu máli og vegna efasemdaradda sem fram komu fengum við færustu sérfræðinga á sviði stjórnskipunarréttar og Evrópuréttar til að velta við hverjum steini. Við leituðum meðal annars til þeirra fræðimanna sem lýst höfðu efasemdum um að upptaka þriðja orkupakkans stæðist stjórnarskrá. Vegna ráðlegginga þeirra ákváðum við að setja lagalega fyrirvara, samkvæmt tillögu þeirra, til að tryggja að ákvæði orkupakkans sem varða tengingar yfir landamæri komi ekki til framkvæmda nema Alþingi tæki sérstaka ákvörðun um þær og að lokinni endurskoðun lagarammans. Jafnframt þótti mér nauðsynlegt að fá úr því skorið hvaða þýðingu það hefði ef Ísland drægi sig á fordæmalausan hátt úr þriðja orkupakkanum á lokastigum málsins. Til þess fengum við Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins, sem hefur yfirburðaþekkingu á þessu sviði,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. 

Sundurliðaður kostnaður vegna álitsgerðanna og vinnu í tengslum við þær má sjá hér að neðan. 

Stefán Már Stefánsson         kr. 2.756.520

Friðrik Árni Friðriksson Hirst kr. 1.776.880

Thales slf. (Davíð Þór Björgvinsson) kr. 927.520

Skúli Magnússon                 kr. 1.500.000

Alþjóða- og Evrópuréttarstofnun HR kr. 675.000

Carl Baudenbacher            kr. 8.470.737

Samtals                 kr. 16.106.657