Álið er gullið í endurvinnslunni

„Við seljum allt plast og ál og það er ágætis verð alltaf á áli. Álið er gullið í endurvinnslunni og plast er reyndar á mjög góðu verði í dag. Við erum að selja á þessu ári fyrir um 250 milljónir, plast og ál. Það kemur inn í reksturinn. Það er hagnaður en hann er niður hjá okkur núna því skilin eru ekki nógu góð,“ segir Helgi Lárusson, framkvæmdastjóri Endurvinnslunnar í Knarrarvogi.

Helgi var viðmælandi Lindu Blöndal í umhverfisþættinum Súrefni, sem hóf göngu sína að nýju á miðvikudaginn. Hann segir skilin ekki jafn góð um þessar mundir vegna hagsældar, af þeim sökum sé peningahvatinn ekki jafn mikill auk þess sem ferðamenn margir hverjir þekki ekki endurvinnslukerfið. Hann hvetur alla til að endurvinna svo fremst þeir megi.

Endurvinnslan á 30 ára afmæli á árinu. Eftir því sem best er vitað er Ísland fyrsta landið í heiminum sem setur upp sérstakt endurvinnslukerfi fyrir plast, gler og áldósir.

Árangurinn hefur verið góður. „Á þessum 30 árum höfum við verið að safna um 83 prósent af þeim flöskum sem hafa verið seldar eða fluttar inn.“

Aðdragandann að stofnun fyrirtækisins má rekja til nokkurra hugsjónamanna sem blöskraði plastið úti í náttúrunni. „Það var fyrst og fremst þetta rusl úti í náttúrunni og auðvitað vildu menn endurvinna líka en endurvinnsla á þessum tíma var ekkert svo ljós. Í dag eru náttúrulega allir að endurvinna. En þetta var s.s. til að losna við þetta úr náttúrunni og endurvinna þetta,“ segir Helgi.

Gífurlegt magn af plasti og áli er endurunnið í Endurvinnslunni á hverju ári. „Það er verið að endurvinna um 800 tonn af áli og 1600-1700 tonn af plasti,“ segir Helgi.

Með því að endurvinna sparast mikil orka. „Orkan sem sparast árlega í endurvinnslunni er eins og meðalnotkun 10 þúsund fjölskyldna,“ segir Helgi um endurvinnslu áldósa. Þá er ógetin hráefnisspörunin, ál þurfi t.d. tvö tonn af báxíti, sem er mengandi, til að búa til eitt tonn af áli og það þarf tvo lítra af olíu til að búa til sem nemur einum lítra í plast.

Fyrsti þáttur í annarri seríu af Súrefni er aðgengilegur hér: