Alhvít jörð fyrir norðan

Alhvít jörð er nú á Norðurlandi. Snjór hefur fallið síðasta sólarhring og er almenningi miskærkominn eins og gengur. Hálka er víða á vegum og götum líkt og á Akureyri þar sem myndin með fréttinni var tekin í morgun. Snjórinn hefur áhrif á rjúpnaveiðimenn en veiði hefur farið rólega af stað.

Veiðitímabilið hófst á föstudag. Þá var jörð marauð. Nú er víða allt hvítt af snjó sem breytir skilyrðum til veiðanna með ýmsum hætti.

Veiðar eru leyfðar þrjár næstu helgar frá föstudegi til sunnudags. Lýkur veiðitímanum 15. nóvember.