Alhvít fjöll á öllu suðurlandi

Ekkert lát hefur verið á ofankomu víðsvegar um landið þótt sumarið eigi að heita þriggja og hálfs vikna gamalt. Fólk á Suðurlandi vaknaði við alhvíta jörð í morgun og fjöll þar um slóðir eru á að líta eins og um hávetur sé að ræða.


Þannig sást ekki á dökkan díl á sjálfri Heklu í dag sem stóð upp úr sínu sviði eins og hvítkædd brúðarmær þegar Sunnlendingar risu úr rekkju. Vel má vera að þannig verði hún á að líta næstu daga, jafnvel vikur, því samkvæmt langtímaveðurspánni verða hitatölurnar fram að næstu helgi ekki í hærra laginu; einsstafa tölur er ríkjandi í blessuðum kortunum alla vikuna og hugsanlegt að enn komi hann hvítur af himni.        


Það eina jákvæða við spána næstu daga er að næturfrostinu á landi virðist vera að linna, en eftir miðja vikuna virðast íslenskar sumarnætur æta að halda sig ofan við núllið.