Algjört kjaftæði í þór saari

„Ég heyrt þetta áður hjá Margréti Tryggvadóttur; að ég hafi alltaf verið á fjöllum í stjórnarskrárvinnunni. Það er algert rugl,“ segir Róbert Marshall, þingmaður BF en Hringbraut leitaði viðbragða hans eftir að Þór Saari bar hann sökum í gær.

Þór, sem sat á þingi á síðasta kjörtímabili sagði að Róbert hefði vorið 2013 verði með ferðamenn á fjöllum, fjaverandi frá þingstörfum. Það hefði haft óheppileg áhrif á stjórnarskrármálið.

Því hafnar Róbert.

„Ég hef síðustu ár leiðsagt fyrir Ferðafélagið eina til tvær Hnjúksferðir einhverjar apríl- eða maíhelgar. Ég var formaður allsherjarnefndar þegar stjórnarskrárvinnan hófst með frumvarpi um stjórnarskrárnefnd, þjóðfund og stjórnlagaráði. Beitti allri minni lagni til að fá Framsókn og Sjálfstæðisflokk með í ferlið, sem tókst þarna í upphafi. Ég hef verið einlægur stuðningsmaður þess að breyta stjórnarskránni og unnið ötullega að því,“ segir Róbert.

Hann segir Þór Saari og Margrét Tryggva ágætisfólk „...en þau eru því miður mestu besserwisserar sem ég hef kynnst og eiga í erfiðleikum með að komast að samkomulagi við sjálf sig, hvað þá aðra. Þetta er því algert kjaftæði hjá Þór,“ segir Róbert Marshall.

Ekki hafi verið meirihluti fyrir breytingum á stjórnarskránni á síðasta kjörtímabili. „Við sem vissum það, og vissum að andstaðan var jafnvel meiri en sú sem var sýnileg, reyndum þess vegna að bjarga vinnunni með því að fá breytingarákvæðinu breytt sem gerir okkur vonandi kleift að þoka málinu áfram núna. Strategía Þórs og Margrétar vorið 2013 var að keyra málið í atkvæðagreiðslu til að geta sýnt öllum hvað þau væru miklir stuðningsmenn stjórnarskrárbreytinga en aðrir ekki. Þeim var slétt sama þó málið yrði fellt. Ég var ekki þar og ég sagði þeim það á lokametrunum, ég ætlaði ekki að taka þátt í að keyra málið inní fyrirfram tapaða atkvæðagreiðslu just to prove a point og þess vegna neitaði ég að taka þátt í akkorðsvinnu við að \"klára\" nýja stjórnarskrá. Þannig er stjórnarskrám ekki breytt.“