Algjört brjálæði í hvíta húsi trumps

Síðasta vika var algjört brjálæði innan Hvíta hússins, það versta í langan tíma. Þetta er samdóma álit starfsfólks þar sem CNN  og Washington Post ræddu við. Þau lýsa stjórnlausum forseta sem æðir rasandi um gólf, brjálaður út í fjölmiðla og rannsókn Robets Muellers, sérstaks saksóknara. Reiðin brýst svo fram í skyndiákvörðunum eins og á fimmtudaginn um hækkun tolla á ál og stál og nú síðast hótun um tollahækkun á evrópskum bílum.

Leiðtogar annarra ríkja eru nú jafn gapandi yfir forsetanum og starfsmenn hans eru dags daglega og horfa óvænt fram á viðskiptastríð gegn Bandaríkjunum sem engan hafði órað fyrir. Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar ESB, sagði að nú þyrfti ESB að hækka tolla á móti, Harley Davidson mótorhjól, Levis gallabuxur og amerískt viskí. „Nú neyðumst við líka til að vera svona heimskir,“ sagði hann.

Sumir starfsmenn Hvíta hússins óttast að botninum sé ekki náð, óstjórnin geti enn vaxið. Nú síðast í dag er fárast yfir ummælum forsetans þar sem hann hreifst af ákvörðun Kínaforseta um að afnema hámarksfjölda kjörtímabila. „Nú er hann forseti svo sem lengi sem hann lifir, sem er frábært,“ sagði Trump og að kannski ættu Bandaríkin „að prófa það einhvern tíma.“