„algjörlega ömurlegt“

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur viðurkennt að henni þyki skýrsla Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um hvalveiðar ekki vera fullnægjandi, en ákvörðun Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegsráðherra, um að leyfa hvalveiðar til næstu fimm ára, var meðal annars byggð á skýrslunni. Hefur ákvörðunin verið gagnrýnd harðlega, meðal annars af umhverfisráðherra og heimsmeistaranum í Formúlu 1 kappakstrinum, Lewis Hamilton. (sjá nánar)

Í svari sínu við fyrirspurn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns Viðreisnar, um hvort hún ætlaði að beita sér fyrir því að gert verði heildstæðara mat á áhrifum hvalveiða við Íslandsstrendur, sagði forsætisráðherra:

„Ég tel mikilvægt að það vari fram heildstætt mat á sjálfbærni hvalveiða. Ég ber virðingu fyrir því að ráðherra byggi ákvörðun sína út frá bestu gögnum sem við eigum. Ég tel ekki að hið raunverulega mat hafi farið fram á samfélagslegum áhrifum af hvalveiðum.“

Ömurlegt, heimskulegt og skaðlegt

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir þetta vera heimskulegt:

„Forsætisráðherra var spurð að því rétt í þessu hvort hún teldi rannsókn á sjálfbærni hvalveiða fullnægjandi. Hún svaraði því afdráttarlaust neitandi.

Þá var hún spurð að því hvort í því ljósi hún hygðist beita sér fyrir breytingu á ákvörðun sjávarútvegsráðherra um að heimila hvalveiðar. Forsætisráðherra svaraði því að ákvörðun hefði verið byggð á bestu upplýsingum dagsins… sem hún sagði þó að væru ófullnægjandi og að hún teldi nauðsynlegt að fara í frekari rannsókn. Semsagt, hún, þvert á stefnu (eða skulum segja fyrri stefnu) VG leyfir hvalveiðar þrátt fyrir ófullnægjandi upplýsingar um það tjón sem þær valda. Þetta þykir mér

Nánar á

https://eyjan.dv.is/eyjan/2019/03/01/helga-vala-um-forsaetisradherra-algjorlega-omurlegt-og-framuna-heimskulegt-og-skadlegt-ad-auki/

algjörlega ömurlegt og frámuna heimskulegt og skaðlegt að auki.“