Algert afnám hafta mögulegt

Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífins segir í viðtali á Þjóðbraut að varlega hafi verið stigið til jarðar í afnámi gjaldeyrishafta.

Breytingar á lögum um gjaldeyrismál voru samþykktar á miðvikudag á Alþingi og er enn eitt skrefið í átt að afnámi hafta. Ásdís segir þetta varfærin skref og mun lengra sé hægt að ganga. Aðstæður til að afnema alveg höft séu til staðar, lánshæfismat ríkisins hafi hækkað, hagvöxtur góður og umheimurinn líti nú til Íslands með jákvæðum augum.

Aðstæður séu kjörnar til að \"rífa plásturinn alveg af\", segir Ásdís.