Algerlega heillaður af rússajeppum

Jói Bachmann opnar hvern skúrinn af öðrum í bíladelluþáttum sínum á Hringbraut og það var engin undantekning á því í gærkvöld þegar einn ljúfasti vinur íslenska dreifbýlingsins var skoðaður.

Nú var það sumsé Rússajeppi í eigum Sigurgeirs Guðmundssonar skólastjóra á Hellu sem fékk athygli áhorfenda, en þáttinn með þessum frækna karli má sjá hér á vef stöðvarinnar. Hann hefur frá 19 ára aldri haft sérlega gaman af Rússajeppum og átti lengi vel einn slíkan af árgerð 1969 með flathead orginal. En nú á hann Rússajeppa 1957 með 350 mótor sem var tvennra dyra en er í dag fernra dyra með blæju.

Sigurgeir hefur haft það sem markmið í bílastússi sínu að það sem einhver geti gert geti maður það líka sjálfur - og með þessu hugarfari gerði hann upp \"nýja\" Rússann sinn, en til að betrumbæta handverkið keypti hann sér iðnaðarsaumavél og saumaði blæjuna á sinn Rússa með smellum, gluggum og rennilásum - og saumar svo fyrir aðra líka, ef því er að skipta.

Sigurgeir heldur úti Facebook-síðu um Rússajeppa á Íslandi ásamt Sigurbirni Helgasyni og er það glæsilegt framtak hjá þeim félögum. Sigurgeir er einnig ötull björgunarsveitamaður á Hellu og hefur m.a. notað Rússajeppann til björgunarstarfa. 

Í þættinum er líka enn rætt við Óla Bruna, svo sem gert var í síðasta þætti, en núna er farið heim til hans til að skoða fleiri Café racer mótorhjól sem eru mögnuð hjá þessum meistara, eins og Jói orðar það af hæversku sinni, en karlinn hefur að hans sögn smíðað fjölmörg þess háttar hjól og á hann stórglæsilegt safn hjóla sem áhorfendur fá að skoða í skúrnum að þessu sinni. 

Skúrinn er frumsýndur öll mánudsagskvöld klukkan 20:30.