Algerlega breytt staða íhaldsins

Hæstráðendur í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins hafa algerlega skipt um kúrs í uppstillingu á lista flokksins, en þar hefur fjölbreytnin vikið fyrir einsleitninni, mjög líklega með bágum árangri hans á úrslitastundinni í vor.

Þetta er mat þeirra Jóns Sigurðssonar og Svavars Gestssonar, fastagesta í Ritstjórunum, en þeir rifja það upp, hoknir af ritstjóra- og stjórnmálareynslu, að Sjálfstæðisflokkurinn hafi lengst af alltaf lagt höfuðáherslu á að hafa fulltrúa sem flestra stétta og menntagreina á lista sínum, svo og óþekka jafnt sem þæga liðsmenn og þannig farið fram með breiðan hóp sem margir kjósendur hafi getað samsamað sig við. Leiðtogakjörið hafi alveg breytt þessu, fólki af öðru sauðahúsi en forystan kærir sig um, hafi hreinlega verið skóflað burt af listanum - og það sé rétt sem Áslaug Friðriksdóttir hafi sagt í frægu viðtali í Mannlífi nýverið, að flokkurinn sé orðinn að einnar skoðunar klíku.

Þeir segja að þarna sé komin skýringin á því af hverju sókn flokksins, með Eyþór Arnalds í forystu, hafi verið stöðvuð og raunar megi búast við því að flokkurinn tapi meira fylgi á komandi vikum af því að fjöldi annarra flokka, Viðreisn, Framsókn, Miðflokkurinn og Flokkur fólksins muni líklega reita af honum eitthvað fylgi eftir því sem kosningabaráttunni vindur fram.

Í þættinum, sem frumsýndur var á þriðjudagskvöld, er því jafnframt velt upp hvort pólitíkin og bisnesinn í landinu hafi eitthvað lært af hruninu, núna áratug eftir að það reið yfir landsmenn.

Ritstjórana er einnig hægt að nálgaast á vefnum hrringbraut.is undir flipanum sjónvarp.