Eftir áralanga baráttu fyrir skimun/hópleit fyrir ristilkrabbameini hjá körlum og konum er loksins kominn á samningur Krabbameinsfélagsins og Velferðarráðuneytis um að ljúka undirbúningi þess verkefnis og hefja boðun í skimun í janúar á næsta ári.
Þetta er algjör bylting að sögn Kristjáns Oddsonar, yfirlæknis og forstjóra Krabbameinsfélagsins, en hann var gestur í þættinum Fólki með Sirrý á Hringbraut í gærkvöld. Þátturinn er helgaður Mottumars, árveknisátaki Krabbameinsfélagsins gegn krabbameini í körlum.
Listamennirnir Helgi Pétursson og Tolli Mortens komu fram í þættinum og sögðu hispurslaust frá baráttu sinni við krabbamein. Og læknirinn þeirra, Eiríkur Jónsson, yfirlæknir þvagfæraskurðlækningadeildar LSH sagði frá efanum og baráttunni sem læknar og sjúklingar standa frammi fyrir þegar valin er meðferð við krabbameini karla.
Þetta er manneskjulegur og upplýsandi þáttur sem hægt er að skoða inn á vef Hringbrautar, hafi fólk misst af honum í sjónvarpi.