Spánarárið erfitt hjá alfreð finnboga

Knattspyrnukappinn Alfreð Finnbogason verður gestur Harðar Snævars Jónssinar í fótboltaþættinum 433 á Hringbraut í kvöld og ræðir reynslu sína af atvinnumennskunni á Spáni, en lífið þar hefur ekki verið neinn dans á  rósum.

 

Alfreð gekk í raðið Real Siciedad fyrir rösku ári eftir að hafa heillað Hollendinga upp úr skónum um árabil með leikni sinni með knöttinn en hann var þar jafn marksækinn og hann var markheppinn. Árið í San Sebastian í Baskahéraði Spánar hefur verið honum fremur mótdrægt eins og hann greinir einlæglega frá í viðtalinu við Hörð Snævar í kvöld, en hann segist ekki hafa fengið jafn mörg tækifæri með liðinu eins og hann átti von á. Alfreð fer annars vítt og breitt í spjalli sínu, ræðir um lífið á Spáni, hvernig honum hefur tekist að takast á við mótlætið og þau spennandi verkefni sem framundan er með íslenska landsliðinu.      

 

Í þættinum ræðir Hörður Snævar líka við Bjarna Guðjónsson þjálfara KR sem er á sínu fyrsta tímabili með liðið. Bjarni ræðir um pressuna sem fylgir því að stýra KR en honum hefur vegnað vel í starfi á sínum fyrstu mánuðum.

 

Sjónvarpsþáttur 433.is er á dagskrá Hringbrautar í kvöld klukkan 21:15.