Í texta sem Alexía Björg Jóhannesdóttir, kynningarstjóri Hörpu, sendir fyrir hönd Hörpu kemur fram að stjórnendum Hörpu þyki afar leitt að heyra af upplifun tveggja gesta í Hörpu síðastliðinn laugardag, af viðmóti starfsmanna tónlistarhússins og aðkomu á salerni hússins.
Líkt og Hringbraut greindi frá voru hjónin frá höfuðborgarsvæðinu afar svekkt eftir að hafa fjárfest í miða á tónleikana Í brekkunni síðastliðnu helgi. Aðkoma þeirra á salerni Hörpunnar og viðmót starfsfólks varð til þess að upplifun þeirra þetta kvöld var algjörlega óboðleg að þeirra mati.
Sjá einnig: Sár og svekkt eftir heimsókn í Hörpu: „Þetta var hreinlega eins og í fjósi“
„Okkur þykir afar leitt að heyra af upplifun tveggja gesta í Hörpu síðastliðinn laugardag. Rétt er að mikill fjöldi fólks var í Hörpu þetta kvöld og því fullt á veitingastöðum hússins,“ segir í yfirlýsingu frá Hörpu.
„Salernin við Eldborg eru opnuð klukkutíma áður en viðburðir í salnum hefjast og því býðst þeim gestum sem mæta enn tímanlegar en það að nota salerni á inngangshæð bílastæðahúss Hörpu.
Þar er aðal salernisaðstaða fyrir almenna gesti hússins þar með talið þann stóra hóp ferðamanna sem heimsækja Hörpu á hverjum degi. Þessi salerni eru þrifin þrisvar sinnum á dag en ljóst er að í einstaka tilfellum hefur það ekki dugað til að halda aðstöðunni eins og við viljum hafa hana. “
Hún segir að frá og með 1. febrúar muni nýtt ræstingarfyrirtæki taka við þrifum í Hörpu. Samhliða því verði tekið upp gæðakerfi ræstinga samkvæmta INSTA 800 staðli. Það þýði að salernin verða þrifin fimm sinnum á dag.
„Markmið Hörpu eru að gestir eigi góðar og eftirminnilegar stundir í húsinu hvert svo sem erindi þeirra er. Starfsmenn Hörpu og þjónustuaðilar munu áframgera sitt allra besta til að stuðla að því. Þannig að gestir okkar geti áfram farið glaðir úr húsi.“