Alexandra Bríem, borgarfulltrúi Pírata, segir lýðræðið þarfnast aðhalds og verndar og hvetur fólk til að sýna samstöðu með frelsi fjölmiðla.
Í skoðanagrein Alexöndru sem birtist á Vísi í dag segir hún mál fjögurra blaðamanna sem hafa réttarstöðu sakbornings í máli hjá lögreglunni á Akureyri ekki halda vatni.
Íslenska réttarkerfið hafi meiri áhuga á að sækja til saka þá sem sögðu frá en þá sem málið varðar.
Alexandra skrifar um mál blaðamannana sem hafa réttarstöðu sakbornings í máli lögreglunnar vegna meintra brota gegn friðhelgi einkalífs vegna umfjöllunar sinnar um svokallaða „skæruliðadeild“ Samherja.
„En íslenska réttarkerfið hefur meiri áhuga á því að sækja til saka þá sem sögðu frá. Blaðamennirnir sem sögðu okkur frá þessu hafa réttarstöðu sakbornings. Ég veit ekki til þess að neinn af yfirmönnum Samherja hafi þá réttarstöðu.
Skilaboðin eru augljós, í augum valdsins er glæpurinn að segja frá, að vera óþægileg, að búa til vesen fyrir þá sem fara með fé og völd,“ segir Alexandri í greininni og heldur áfram.
„Það er augljóst að þessi ákæra heldur engu vatni. Í lögunum er sérstaklega tilgreint að þeim sé ekki ætlað að hefta frelsi blaðamanna. Og það er skýrt í lögum að blaðamönnum ber ekki að upplýsa hvaðan þeir hafi sínar upplýsingar eða uppljóstranir.
Enda er ekki tilgangurinn að dæma þau í fangelsi endilega. Heldur bara að gera þeim lífið leitt. Kalla í yfirheyrslur, þjófkenna í fjölmiðlum, gera lítið úr þeim og þeirra störfum. Tilgangurinn er að gera starfið minna aðlaðandi, að fólk gefist upp og geri frekar eitthvað annað, að ungt fólk taki sér eitthvað annað og þægilegra fyrir hendur en rannsóknarblaðamennsku.“
Alexandra segir málið ekki lýðræðislegt og að lýðræðið þarfnist aðhalds. Því hvetji hún fólk til að mæta á Austurvöll núna til að sýna frelsi fjölmiðla samstöðu.