Aldreifing dv í boði hagsmuna?

Kjarninn bendir í pistli sem merktur er ritstjórn vefmiðilsins að í bæði skiptin sem DV hafi verið frídreift um landið hafi tveir umdeildustu stjórnmálamenn samtímans, annars vegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og hins vegar Ólafur Ragnar Grímsson, verið á forsíðu og í stóru viðtali. Það telur Kjarninn vekja spurningar út frá eigendavaldi. Björn Ingi Hrafnsson hafi gefið út eigin aðdáun opinberlega á Ólafi Ragnari sem yfirburðamanni á  facebook sama dag og forsetanum var aldreift. Þá bendir Kjarninn á að eftir yfirtöku DV í fyrra hafi orðið vending í ritstjórnarstefnu blaðsins. Séu nú ekki lengur fluttar gagnrýnar fréttir í DV, hvorki um forsetann né forsætisráðherra.

Hugmyndir um framsóknarmennsku á bak við blaðið og að peningarnir sem enginn veit enn hvaðan koma til að halda uppi meintum taprekstri Vefpressunnar séu framsóknarpeningar hafa einnig fengið byr undir báða vængi á fésbók í dag eftir að Kjarninn birti grein sína. Þannig telja margir að um sé að ræða snemmbúinn kosningaáróður.

Lára Hanna Einarsdóttir samfélagsrýnir skefur ekki af því: „Svona eru fjölmiðlar stjórnmálamanna notaðir - eða misnotaðir. Þetta er svo hræðilega óheiðarlegt.“

Sturla Jónsson bílstjóri spyr: „Hvers málgagn er DV þegar það er borið frítt í hús?“

Kristinn Hrafnsson fréttamaður segir einfaldlega um DV: „Gamli Tíminn.“