Aldrei verið greitt fyrir lélegri ráðgjöf

"Það er búið að vera að röfla um það á Alþingi og út um allt síðustu daga, að innanríkisráðuneytið og lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hafi eytt nokkrum milljónum í að kaupa þjónustu almannatengslafyrirtækja - aðallega vegna lekamálsins margumtalaða," skrifar Páll Magnússon þáttastjórnandi á Hringbraut í nýjum pistli sínum hér á síðunni. "Menn ættu að hafa minni áhyggjur af upphæðinni en því hversu hin keypta þjónusta var bersýnilega afspyrnu léleg," skrifar hann áfram og brýnir stafinn: "Hafi framganga ráðuneytisins og lögreglustjórans raunverulega byggst á aðkeyptri ráðgjöf ætti ekki bara að fá hana endurgreidda heldur ætti líka að heimta skaðabætur. Það hefur örugglega aldrei verið greitt fyrir lélegri ráðgjöf."


Hann telur að ráðuneytið og lögreglustjórinn geti með þessu notað fjárhagslegan hagnað til að vega á móti laskaðri ímynd.


Pistill Páls: