Tónlistargoðsögnin Bubbi Morthens upplýsti í viðtalsþættinum Mannamáli á Hringbraut í gærkvöld að eitt hans allra kunnasta lag, Stál og hnífur, sem líkja má við þjóðlag í dag, hafi aldrei átt að fara inn á fyrstu plötu hans, Ísbjarnarblús.
Bubbi segir að lagið hafi verið tekið inn á plötuna í hallæri, hann hafi aldrei verið sáttur við lagið og fundist það klúðurslega ort, en eina ástæða þess að það sé að finna á plötunni er að það hafi vantað eitt lag í viðbót og því hafi verið kippt inn á lokametrunum, en þó eiginlega fyrir slysni.
Eftir á að hyggja skilji hann þó vinsældirnar sem það hreppti; landsmenn, ekki síst fólk úti á landi hafi tengt sig við lagið, því á þeim tíma hafi alltaf einhverjir verið að drukkna úti fyrir fjörðunum hringinn í kringum landið.
Það breyti því ekki að hann sé enn ósáttur við lagið.
Bubbi fór annars víða í viðtalinu sem að drjúgum hluta fjallaði um æsku hans, stormasamt samband foreldra hans og spruninguna um hvort hann hafi verið heimskur, en einnig er komið inn á rokkið í byrjun ferils hans, en kappinn minnist fyrstu sveitarinnar, Utangarðsmanna með svibrigðum sem merkja vondar minningar, slík hafi átökin verið innan þeirrar grúppu að oft hafi verið slegist uppi á sviði.
Mannamál, fyrri hluta viðtalsins við Bubba, má nálgast hér á vef stöðvarinnar, en seinni hluti viðtalsins verður sendur út eftir viku, sunnudagskvöldið 27. desember, klukkan 20:30.