Aldrei rétti tíminn til að hækka laun

„Við fórum í gegnum gríðarlegt góðæri á nokkrum árum þar sem við sáum að eigendur margra þessara fyrirtækja sem eru að semja við launþega hafa hagnast alveg gríðarlega, tekið út alveg ógurlegan arð, sem er bara lífstíðartekjur þessara starfsmanna. Nú segja þeir: „Tíminn núna er ekki réttur til þess að hækka laun,“ og segja að það sé að fara að kreppa að og von á verðbólgu sem þýðir náttúrulega að vöruverð hækkar og fasteignalánin hækka. Eru það rök fyrir launþega að slaka á sínum kröfum? Nei, það eru rök til að biðja um meira.“

Þetta segir Jón Trausti Reynisson, ritstjóri Stundarinnar. Jón Trausti og Jóhannes Kr. Kristjánsson, ritstjóri Reykjavík Media, voru gestir Sigmundar Ernis í Ritstjórunum í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í gærkvöld. Þar ræddu þeir helstu fréttamál líðandi stundar, þar á meðal kjaramálin.

Jóhannes tekur undir orð Jóns Trausta um að það virðist aldrei réttur tími til að hækka laun. „Það er nú bara þannig að atvinnurekendur, einstaklingur sem er að reka fyrirtæki , hann reynir að fá alla vöru og þjónustu á eins ódýran hátt og kostur er. Það er allt reynt til þess að fá þjónustuna eða vöruna ódýrari, borga færri krónur fyrir það. Atvinnurekendur munu alltaf segja, það verður alltaf þannig, að það er aldrei rétti tíminn til að borga hærri laun. Það þarf að borga þessum hópum sem eru með lægstu launin, það þarf að borga þeim hærri laun, það er alveg klárt mál. Ég held að það séu allir sammála um það nema atvinnurekendur.“

Jón Trausti segir að ef von er á því að kreppi að verði að skoða hverjir beri ábyrgð. „Íslenskt efnahagslíf byggir á svo miklum sveiflum þar sem menn komast á svakalegt flug, eins og Skúli gerir með WOW og fleiri hafa gert. Síðan kemur einhvern veginn óumflýjanleg niðursveifla þar sem krónan, verðtryggingin og vaxtastefnan magna svolítið sveiflurnar virðist vera. Láglaunafólkið á alltaf að fyrirfinna sig á vitlausum stað í bylgjunni. Ekki það að hafa alveg orðið launahækkanir, það hefur alveg batnað hagur. En ef við erum að horfa á þetta, að það kreppi að, þá þurfum við líka fyrir sanngirnissakir, ekki bara af praktískum ástæðum, að horfa aðeins til baka. Hverjir eru búnir að græða mjög mikið? Bara verði þeim að því, frábært. Hverjir byrjuðu á því að taka gríðarlegar launahækkanir? Hverjir eru það sem bera mesta ábyrgðina? Íslenska efnahagslífið er bara með einhverja svona dempara og demparinn leiðir bara upp í aftursætið þar sem allir fá höggið, þú sem launþegi, þú sem neytandi. Launin þín rýrna, vöruverð hækkar, fasteignalánin hækka. Þetta gerist allt einhvern veginn á sama tíma.“

Nánar var rætt við Jón Trausta og Jóhannes í Ritstjórunum í gærkvöld. Auk kjaramálanna var rætt um stöðu WOW air og tímamótadóm sem féll í hæstarétti fyrir síðustu helgi, þar sem lögbann á umfjöllun Stundarinnar og Reykjavík Media sem byggði á gögnum úr þrotabúi Glitnis var endanlega dæmt ólögmætt.

Umræðurnar í heild sinni er að finna hér: