Aldrei minni lestur á blöðunum

Aldrei hafa færri lesið Fréttablaðið, Morgunblaðið, Fréttatímann og DV en samkvæmt mælingu Gallup í ágúst. Kjarninn greinir frá þessu og vísar í könnunina. Viðskiptablaðið tapar einnig lestri en hefur áður mælst með minni lestur.

Fréttablaðið er þrátt fyrir mestu útlitsbreytingar sögunnar komið nálægt 50% en blaðinu er dreift frítt í 90 þúsund eintökum sex daga vikunnar inn á flest heimili í landinu. Fréttatíminn er í „frjálsu falli“ samkvæmt Kjarnanum. Blaðið er prentað vikulega í 82 þúsund eintökum en mælist 36,34 prósent. Það er tíu prósentum minni lestur en í mars síðastliðnum.

35% lesenda hafa yfirgefið Moggann á sex árum segir í frétt Kjarnans. 28,09 prósent Íslendinga yfir 18 ára aldri segjast lesa blaðið nú.

„DV er hins vegar það dagblað sem kemur verst allra út úr könnuninni. Blaðið missir yfir tvö prósentustig í lestri, eða um 23 prósent af þeim fjölda sem las blaðið í júlí. Nú lesa 7,13 prósent þjóðarinnar yfir 18 ára aldri DV og lestur blaðsins hefur aldrei nokkru sinni í 40 ára sögu þess verið jafn lítill og hann var í síðasta mánuði. Þegar horft er á yngri lesendur, þá sem eru undir fimmtugu, er lesturinn enn minni, eða um sex prósent,“ segir í frétt Kjarnans.

Hringbraut vann á dögunum úttekt um fjölmiðla og eignarhald þeirra sem lesa má hér.