Aldrei meira tekið af óverðtryggðnum lánum

Ný óverðtryggð útlán með veði í íbúðarhúsnæði námu 7,5 milljörðum á vettvangi innlánsstofnana í september síðastliðnum. Morgunblaðið segir frá þessu í dag og vísar í nýjar tölur Seðlabankans.

Í fréttinni segir að aldrei fyrr hafi heimilin í landinu tekið jafn mikið að láni í formi óverðtryggðra lána með veði í húsnæði sínu í einum mánuði.

 Í september námu ný útlán innlánsstofnana til heimila, með veði í húsnæði, rúmum 13 milljörðum króna. Hlutfall óverðtryggðra húsnæðislána var því 57 prósent en verðtryggðra 43 prósent.

6,6 milljarðar voru lánaðir í formi óverðtryggðra húsnæðislána en verðtryggði hlutinn nam 4,9 milljörðum króna, segir enn fremur í fréttinni. Þar er birt hvaða vaxtakjör bjóðist en breytilegir óverðtryggðir vextir bankanna á húsnæðislánum eru 5,75 til 6,3 prósent. Breytilegir verðtryggðir vextir bankanna á húsnæðislánum eru 3,65 prósent hjá þeim öllum.

Einnig kemur fram að það sem af er þessu ári nemi ný óverðtryggð útlán um 48 milljörðum króna sem er gríðarleg aukning frá því í fyrra. Aukningin það sem af er þessu ári nemur tæpum 360 prósent samkvæmt útreikningum blaðsins.