Aldrei meira fjölmenni á menningarnótt

Líklega hefur aldrei verið meira fjölmenni á Menningarnótt Reykjavíkur og síðastliðið kvöld þegar á annað hundrað þúsund manns mætti í miðbæinn til að sýna sig og sjá aðra.

Fjölmennið var mest þegar hinir síungu Stuðmenn stigu á stokk á ellefta tímanum en þá var Arnarhóllinn, Lækjargata og allar hliðargötur í grennd þéttfullar af fólki sem dillaði sér við söng Egils Ólafssonar, Valgeirs Guðjónssonar og Ágústu Evu Erlendsdóttur.

Fjöldi atburða skreytti dagaskrá Menningarnætur, en kannski bar hæst þegar Bernharður Wilkinson, stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands fékk unga stúlku utan úr sal Eldborgar til að stjórna laginu Sprengisandi fyrir stútfullum sal, en sjálfum fannst honum það full til íslenskt fyrir sinn enska smekk.

Hátíðarhöld gærkvöldsins gengu almennt vel fyrir sig þrátt fyrir talsverða ölvun þegar leið á kvöldið.