Aldrei kynnst öðrum eins vetri

"Þetta er sá alerfiðasti vetur sem ég hef kynnst hér á þessum slóðum, enda er búið að vera meira og minna brjálað veður hérna frá byrjun desember og það ætlar ekkert lát að verða á þessu," segir Stefán Þormar Guðmundsson staðarhaldari á Litlu kaffistofunni nokkuð armæðufullur og verður litið út um gluggann: "Og vittu til, það er aftur orðið snarvitlaust veður. Hér sjáum við ekki út á veginn." Stefán hefur rekið kaffistofuna í 23 ár, en þetta kunna vertshús fagnar 60 ára afmæli í ár og er elsti greiðaskáli við þjóðveg 1 sem enn er í upprunalegri mynd. "Þetta er búið að vera steindautt í alltof marga daga," segir Stefán um viðskipin og ætlar að dagurinn í dag sé sá fimmtándi á árinu sem Hellisheiðinni er lokað. "Ekkert viðlíka hefur gerst áður," segir hann að lokum innan úr kafaldsbylnum í Svínahrauni.