Aldrei hræðst að verja glæpamenn

Guðrún Sesselja Arnardóttir hæstaréttarlögmaður, sem prýðir forsíðuna á nýjasta hefti MAN og er kunn af því að verja nokkra harðsvíruðustu glæpamenn landsins segist aldrei hafa óttast neinn þeirra eða veigrað sér við að taka að sér mál.

Hún hefur ákveðnar skoðanir á meðferðum kynferðisbrotamála og dómstóli götunnar sem kallar eftir harðari dómum en felldir hafa verið: \"Það er sífellt kvartað yfir því að ekki sé ákært og sakfellt nægilega oft í þessum málum en þannig á það að vera að mínu mati. Það á að stíga varlega til jarðar í þessum málum og ég er viss um að ef umræddur sakborningur væri einhver nákominn myndu flestir honum nákomnir vilja að aflað væri allra gagna áður en ákveðið væri að hann væri sekur. Myndi fólk virkilega vilja að slakað væri á þessu öllu saman og gengið út frá því að viðkomandi sé sekur? Ég held að mjög algengar aðstæður séu að báðir aðilar séu mjög drukknir, þó ég sé ekki að segja að það sé einhver afsökun fyrir sakborning. Báðir muna stundum illa eftir atburðinum o.s.frv.“ segir hún m.a. í viðtalinu.

Guðrún Sesselja veigrar sér svo sannarlega ekki við áskoranir og tók nýverið að sér hlutverk í væntanlegri kvikmynd Baltasars Kormáks, Eiðnum. Leiklistarbakterían er þó augljóslega allt umlykjandi en Guðrún er gift Jóhanni Sigurðssyni leikara og söngvara og er systir Jóhönnu Vigdísar Arnardóttur leik- og söngkonu.