Árið 2017 fluttust óvenju margir til Íslands og hafa aðfluttir umfram brottflutta aldrei verið fleiri á einu ári, eða 8.240 manns. Þetta eru tvöfalt fleiri en árið 2016, þegar 4.069 fleiri fluttust til landsins en frá því. Áður var flutningsjöfnuður mestur árin 2006 og 2007 þegar um 5.200 fleiri fluttust til landsins en frá því.
Á síðasta ári fluttust 14.929 til landsins og hafa aldrei fleiri flust til landsins á einu ári. Áður höfðu flestir flust til landsins árið 2007, eða 12.546. Þá fluttust 6.689 manns frá landinu árið 2017 samanborið við 6.889 árið 2016. Ef einungis er litið til erlendra ríkisborgara var flutningsjöfnuður 7.888 manns og hefur hann aldrei verið jafn mikill á einu ári. Árið 2006 var flutningsjöfnuður erlendra ríkisborgara 5.535. Flutningsjöfnuður meðal íslenskra ríkisborgara var jákvæður í annað sinn á þessari öld, en aðfluttir voru 352 fleiri en brottfluttir árið 2017. Flutningsjöfnuður íslenskra ríkisborgara var einnig jákvæður árið 2005.
Flestir fluttust til Danmerkur
Af þeim 2.819 íslensku ríkisborgurum sem fluttust af landi brott árið 2017 fóru 1.856 til Noregs, Danmerkur eða Svíþjóðar. Flestir fluttust til Danmerkur, eða 888, og næstflestir til Svíþjóðar (620). Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar voru einnig frá þessum löndum eða 2.207 af 3.171, flestir frá Danmörku (911).
Á sama tíma fluttust flestir erlendir ríkisborgarar til Póllands, 1.288 af 3.870. Þaðan komu líka 4.479 erlendir ríkisborgarar. Hafa aðfluttir erlendir ríkisborgarar frá Póllandi umfram brottflutta einungis verið fleiri árið 2007 eða 3.965.
Um 40% aðfluttra og brottfluttra á aldursbilinu 20–29 ára
Eins og síðustu ár var fjölmennasti hópur aðfluttra og brottfluttra árið 2017 á aldrinum 20–29 ára. Tæplega 43% brottfluttra var á þessu aldursbili og tæplega 39% aðfluttra. Af einstökum árgöngum var 25 ára fjölmennasti hópurinn af brottfluttum (357) en 26 ára af þeim sem fluttust til landsins, eða 716.
Erlendir ríkisborgarar með pólskt ríkisfang fjölmennastir í flutningum til og frá landinu
Eins og verið hefur frá árinu 1996 voru einstaklingar með pólskt ríkisfang fjölmennastir aðfluttra erlendra ríkisborgara árið 2017. Á þessu var þó undantekning árið 2004, þegar einstaklingar með portúgalskt ríkisfang voru fjölmennastir aðfluttra erlendra ríkisborgara. Fyrir 1996 voru danskir ríkisborgarar oftast fjölmennastir erlendra ríkisborgara sem fluttust til landsins. Til landsins fluttust 4.549 einstaklingar með pólskt ríkisfang árið 2017. Einstaklingar með pólskt ríkisfang voru einnig fjölmennastir þeirra erlendu ríkisborgara sem fluttust frá landinu árið 2017, eða 1.315.
Körlum fjölgar vegna búferlaflutninga
Árið 2017 fluttu 5.567 fleiri karlar til landsins en frá því og 2.673 konur. Fram til ársins 2003 fluttust að jafnaði fleiri konur til landsins en karlar. Þessi þróun snerist við á tímabilinu frá 2004 til 2008. Á þeim árum fluttust til landsins samtals 4.215 fleiri karlar en konur. Árin 2009-2012 fluttust hins vegar samtals 4.114 fleiri karlar en konur úr landi umfram aðflutta. Árið 2017 bar svo við að 2.894 fleiri karlar en konur fluttust til landsins sem er umtalsverð aukning frá fyrra ári þegar 1.729 fleiri karlar fluttust til landsins.