Aldrei fundað út af kynhneigð minni

Einn rómaðasti tónlistarmaður þjóðarinnar, Stuðmaðurinn Tómas M. Tómasson birtist landsmönnum í einlægu viðtali í þættinum Mannamáli á Hringbraut annaðkvöld, en þar fer hann yfir langan og litríkan feril sinn með mörgum kunnustu hljómsveitum landsins.

Tommi hefur spilað inn á vel yffir 300 hljómplötur með allra handa tónlistarmönnum, en ferillinn byrjaði með friðriki Þór Friðriksssyni og fleiri góðum strákum í Fónum í Vogaskólanum, en tók svo auðvitað kipp þegar Rifsbrja varð til, grúppunni ssem síðar leiddi saman þá Tomma og Kobba Magg. Meik-árin í Lundunum voru all nokkur og skrautleg, svo sem með enskri sveit sem var við það að slá í gegn, svo og íslensku ofurgrúppunni Change sem fatahönnuður Bay City Rollers hannaði forláta þrönga diskó-galla á, eitthvað sem strákunum fannst ansi óþægilegt að klæðast.

Það er unun að hlusta á Tomma lýsa Stuðmanna- og Þursaflokksárunum og öllum ævintýrunum sem fylgdu spileríi heima og erlendis, til dæmis þegar óargaflokkurinn hélt þeim í gíslingu uppi á sviði, en ekki er síður áheyrilegt að heyra hann segja frá samkynhneigð sinni og hvernig hann kom sér smám saman út úr skápnum á þrítugsaldri þótt hann vissi reyndar upp á hár allt frá unglingsaldri hvort kynið höfðaði meira til hans; hljómsveitarfélagar hans hafi raunar aldrei pælt í þessu, eða eins og Tommi orðar það sjálfur; það þurfti aldrei að halda fund út af kynhneigð minni í bandinu.

Hann segist vera afskaplega þakklátur fyrir feril sinn allan, enda forréttindi að fá að vinna með öllu því gáfaða og frjóa fólki sem spilað hafi með honum á löngum tónlistarferli, en þar skipti hljómagreindin miklu máli, sjálft guðslán hans í lífinu sem geri það að verkum að hann þurfi ekki að heyra lag nema einu sinni til að kunna gang þess og línu.

Mannamál hefst klukkan 20:30 annaðkvöld.