Aldrei hafa fleiri konur verið á flótta í heiminum. Framkvæmdastjóri UN Women, Inga Dóra Pétursdóttir segir betur frá þessu í spjalli við Lindu Blöndal á Þjóðbraut í kvöld.
Konur í Mosul og kring flýja nú grimman veruleika og búa við skelfilegar aðstæður. UN Women samhæfir aðgerðir hjálparsamtaka og tryggir konum og stúlkum kvenmiðaða neyðaraðstoð til dæmis með dreifingu sæmdarsetta. Tekið er mið af þörfum kvenna eftir aðstæðum og er innihald sæmdarsettanna í takt við þær þarfir. UN Women dreifir nú sæmdarsettum til kvenna á flótta í Írak sem innihalda dömubindi, sápu, tannbursta, tannkrem, teppi, barnaföt, tvo pakka af bleium, uppþvottasápu, handklæði og vasaljós.
Jólagjöf UN Women er táknræn gjöf og um leið jólaskraut sem veitir ljós.
Þjóðbraut er að venju á dagskrá kl.21:00 í kvöld. Líka má flakka á dagskrá Hringbrautar og finna þáttinn. Einnig á hringbraut.is um helgina.