Aldrei fleiri í utanlandsferðir

Aldrei hafa fleiri ferðast til útlanda en í fyrra. Tæp 80% svarenda í könnun meðal Íslendinga um ferðalög þeirra á árinu 2017 sögðust hafa ferðast utan á síðasta ári. Þeir fóru að jafnaði 2,6 ferðir. Bretlandseyjar voru vinsælasti áfangastaðurinn en Spánn (þ.m.t. Kanaríeyjar) og Portúgal komu þar á eftir.

Um níu svarendur af hverjum tíu áforma ferðalög á yfirstandandi ári og eru ferðaáform fjölbreytt sem fyrr. Um helmingur nefndi sumarbústaðaferð og borgarferð erlendis, litlu færri heimsókn til vina og ættingja og 37% stefna á sólarlandaferð.

Könnun Ferðamálastofu hefur verið framkvæmd árlega með sambærilegum hætti frá árinu 2010 og sýnir vel breytingar milli ára. Svo virðist sem greina megi aukna jákvæðni til flestra þátta sem spurt er um frá því í fyrra.

Meðal þess sem kom í ljós er að um 84% ferðuðust innanlands á árinu 2017. Farnar voru að jafnaði 6,2 ferðir og var megintilgangur þeirra frí eða skemmtiferð. Suðurland og Norðurland voru þeir landshlutar sem flestir heimsóttu og þar var einnig um helmingur allra gistinátta. Ferðalangar greiddu fyrir tæpan helming gistinótta sinna en annars gistu flestir í sumarhúsi í einkaeign eða hjá vinum og ættingjum. 68% fóru í dagsferð og fóru þeir að jafnaði 4,7 ferðir.

Sundlaugar og söfn voru líkt og verið hefur sú afþreying sem algengast var að fólk greiddi fyrir en um þriðjungur greiddi ekki fyrir afþreyingu á ferðalagi sínu.