Í árslok 2015 voru 38 Íslendingar á lífi á aldrinum 100-106 ára, 14 karlar og 24 konur. Karlarnir hafa aldrei verið fleiri. Þeir voru að meðaltali sjö síðasta aldarfjórðunginn, fæstir fjórir en flestir tólf árið 2004.
Þetta kemur fram á fésbókarsíðunni Langlífi þar sem fylgst er með öldrun þjóðarinnar - og segir þar í samantektinni sem hér er vísað til að hlutfall karla sé nú 37% af heildarfjölda þeirra landsmanna sem komnir eru yfir 100 árin, en þetta hlutfall hafi verið milli 20 og 30% undanfarna áratugi.
Georg Breiðfjörð Ólafsson í Stykkishólmi og Jensína Andrésdóttir í Reykjavík eru elst, 106 ára. Í þriðja sæti er Guðrún Straumfjörð í Reykjavík, 104 ára. Síðan eru fjórir Íslendingar 103 ára, Ingigerður Þórðardóttir á Selfossi, Jón Hannesson í Kópavogi, Dóra Ólafsdóttir í Kópavogi og Sigríður Isaksen í Reykjavík.
Við upphaf ársins 2015 voru á lífi tólf karlar og sextán konur sem hefðu getað náð 100 ára aldri á árinu. Nítján tókst það, 9 körlum og 10 konum. Aðeins einn af þessum nítján lést á árinu.
Tuttugu manns, 6 karlar og 14 konur, geta náð hundrað ára aldri á árinu 2016. Árgangarnir eftir 1916 eru sterkir og má því búast við að á næstu árum fari fjöldi hundrað ára og eldri yfir fimmtíu í fyrsta sinn. Hagstofan hefur spáð því að fjöldinn fari yfir 100 eftir rúma tvo áratugi.