Rúmlega einn þriðji hluti þeirra sem búa á Íslandi eru ekki í þjóðkirkjunni og alls eru 65,4 prósent þjóðarinnar skráð í kirkjuna. Hlutfall þeirra sem skráðir eru í þjóðkirkjuna hefur aldrei verið lægra. Kjarninn greinir frá í fréttaskýringu.
Hjá Kjarnanum kemur fram að að 1. desember síðastliðinn voru 232.672 landsmenn skráðir í þjóðkirkjuna og hafði meðlimum fækkað um 2.419 á einu ári. 122.948 manns standa utan þjóðkirkjunnar og fjöldi þeirra sem kjósa að gera það er tvöfalt hærri en fyrir tæplega áratug síðan. Frá árinu 2009 hefur meðlimum þjóðkirkjunnar fækkað á hverju ári og alls hefur þeim fækkað um 20.164 frá þeim tíma.
Ýmislegt annað forvitnilegt kemur fram í skýringu Kjarnans, sem vitna í þjóðarpúls Gallup frá 23. október síðastliðnum. T.d. að meirihluti landsmanna, 54 prósent, er hlynntur aðskilnaði ríkis og kirkju, að aðeins 14 prósent landsmanna eru ánægðir með störf biskups Íslands og að þriðjungur þjóðarinnar beri mikið traust til þjóðkirkjunnar, sem er tíu prósentum lægra en árið áður.