Þórunn var gestur Morgunvaktarinnar á RÚV í morgun, en þar sagðí hún margar áskoranir hafa komið fram á eldri borgara: \"Ein besta uppástungan sem ég hef heyrt í þessum málaflokki er sú að við höllum okkur að, að fara í framboð með Pírötum. Og það er margt vitlausara. Þetta er náttúrulega flokkur með dálítið ómótaða stefnu og kannski þyrfti bara á okkur að halda, vegna þess að reynslumikið fólk í þessum hópi getur einmitt bætt breiddina hjá unga fólkinu,“ segir Þórunn.
Hún segir að oft á tíðum ráði vaninn þegar komið er í kjörklefann: \"En ég held að ólgan meðal eldri borgara núna, hún sé óvenju mikil,“ bendir Þórunn á og segir ástandið á leigumarkaði eitt af stærstu vandamálunum sem eldri borgarar standi frammi fyrir: \"Síðan er Ísland svo vanþróað á leigumarkaði. Þar er versti vandinn. Þeir sem leigja eru mjög illa varðir. Það er engin löggjöf, það er ekkert öryggi. Og það er að mínu viti löngu tímabært að gera uppreisn út af þessum leigumarkaði,“ segir hún og tekur sem dæmi eldri borgara sem leigir stakt herbergi, með aðgang að salerni með öðrum, á 58 þúsund krónur. Þá segir hún marga eldri borgara standa illa, vegna þess að lengi vel var fæðingarorlof ólaunað, og allt til ársins 2000 var ekki greitt í lífeyrissjóð af fæðingarorlofsgreiðslum.
Sá hópur eldri borgara sem hafi einna lökustu kjörin séu nýbúar: \"Það er einn gleymdur hópur þarna, það eru okkar fyrstu nýbúar eða aðstandendur þeirra sem fluttu hingað á grundvelli fjölskyldusáttmála,“ segir Þórunn: \"Eldri borgarar eiga ekki fullan rétt í almannatryggingum, þeir eiga í hlutfalli af árunum sínum á landinu. Þarna er hópur sem verður fátækur,“ segir Þórunn. Þessi hópur geti búið við sára fátækt. „Alveg eins og við erum að tala um flóttamennina núna, þá eigum við líka að sýna okkar manngæði gagnvart þessum hópi,“ sagði Þórunn á Morgunvaktinni hjá Óðni Jónssyni í bítið þennan morguninn.