Aldraðir 27% af þjóðinni árið 2050

Árið 2050 er áætlað að fjöldi einstaklinga sem eru 65 ára eða eldri verði orðinn um 110 þúsund einstaklingar eða um 27% af þjóðinni. Í dag eru einstaklingar sem eru 65 ára eða eldri um 35 þúsund manns. Fjölgunin er því þreföld á næstu 35 árum. Fólki í þessum aldurshópi fjölgar hvað mest í heiminum og þó er fjölgunin hér á landi, hægari en í flestum öðrum OECD-löndum, samkvæmt svari Maríu Sveinsdóttur hjúkrunarfræðings sem hefur rannsakað lýðfræði hér á landi.


Fram kemur á upplýsingaveitunni spyr.is þar sem þessar upplýsingar er að finna að Hagstofan geri ráð fyrir því að hröðust verði mannfjölgunin í hópi háaldraðra, eða 85 ára og eldri. Að hennar mati er mikilvægasta tækið til að halda í heilsu fólks hvað lengst, fræðsla og forvarnir. Þessi fræðsla geti aukið á lífsgæði fólks og eins unnið mikið á móti áunnum lífstílssjúkdómum.


Í rannsóknarritgerð sem María ásamt fleiri hjúkrunarfræðingum vann sem lokaverkefni í Háskólanum á Akureyri, kom fram að fullorðið vill fá fræðslu, en er ekki vant því. María segir sérstaka þörf á því að fræða aldraða um svefn og svefnvandamál. Þetta hafi komið vel fram í meginniðurstöðum rannsóknarritgerðarinnar. Í svari Landlæknisembættisins til upplýsingaveitunnar segir að Íslendingar ávísi mun meira af róandi lyfjum og svefnlyfjum í samanburði við Norðurlöndin. Í þeim samanburði sé munurinn á milli Íslands og Norðurlandanna sláandi.