Íslendingar á aldrinum 65 ára og eldri voru alls 40.282 hinn 31. desember 2011 samkvæmt manntalinu sem Hagstofa Íslands tók þann dag, en stofan hefur á síðustu misserum verið að flokka þær tölur í þaula.
Í tilkynningu frá Hagstofunni í dag segir að þessi hópur aldraðra jafngildi 12,8% mannfjöldans. Hlutfallslega hafi flestir eldri borgarar búið í Laugardal austur í Reykjavík en fæstir á Völlunum í Hafnarfirði.
Fram kemur í samantektinni að atvinnuþátttaka eldri borgara er mikil hér á landi. Alls náði hún 20,6% í árslok 2011 þegar allir 65 ára og eldri voru taldir. Í aldurshópnum 65 til 69 ára var atvinnuþátttakan 53,2% en 5,7% hjá sjötugum og eldri.
Alls voru 9,2% eldri borgara á stofnun, einkum stofnunum fyrir aldraða. Hlutfallið eykst eftir aldri. Um 30% þeirra sem eru á aldrinum 85 til 89 ára dvöldust á stofnun en yfir helmingur níræðra og eldri.
Alls voru 4.897 íbúðir á landinu ætlaðar til búsetu fyrir eldra fólk, þar af voru 864 fyrir studda búsetu, 2.406 sem virkniíbúðir í tengslum við öldrunarstofnanir en 1.627 með aldurskvöðum. Flestar voru þessar íbúðir í eigu íbúanna sjálfra, en umtalsverður hluti í eigu sveitarfélaga, húsnæðissamvinnufélaga eða félagasamtaka.
Þetta og fleira kemur fram í Hagtíðindum sem Hagstofan hefur nú gefið út.